Óvissa Snorri Steinn Guðjónsson hefur þjálfað Val undanfarin ár.
Óvissa Snorri Steinn Guðjónsson hefur þjálfað Val undanfarin ár. — Morgunblaðið/Eggert
Snorri Steinn Guðjónsson, sem hefur verið í viðræðum við HSÍ um starf landsliðsþjálfara karla í handknattleik, gæti verið á leið til síns gamla félags í Danmörku, GOG. Vísir skýrði frá því í gær að forráðamenn GOG hefðu sett sig í samband við Snorra …

Snorri Steinn Guðjónsson, sem hefur verið í viðræðum við HSÍ um starf landsliðsþjálfara karla í handknattleik, gæti verið á leið til síns gamla félags í Danmörku, GOG. Vísir skýrði frá því í gær að forráðamenn GOG hefðu sett sig í samband við Snorra en félagið er að leita að þjálfara eftir að ljóst varð að Nicolej Krickau væri á förum þaðan til að taka við þjálfarastöðunni hjá Flensburg í Þýskalandi. Snorri lék með GOG árin 2012 til 2014.