— Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Leiðtogar stilltu sér upp í „fjölskyldumyndatöku“ á leiðtogafundinum í gær. Þema fundarins er samstaða en málefni Úkraínu eru í brennidepli. Vel fór á með leiðtogunum eins og sjá má á myndum frá fundinum

Leiðtogar stilltu sér upp í „fjölskyldumyndatöku“ á leiðtogafundinum í gær. Þema fundarins er samstaða en málefni Úkraínu eru í brennidepli. Vel fór á með leiðtogunum eins og sjá má á myndum frá fundinum. Í forgrunni stendur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra með Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur utanríkisráðherra sér á hægri hönd og Mariju Pejcinovic Buric, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, á vinstri hönd en sú síðarnefnda tók á móti fundargestum ásamt Katrínu við upphaf fundarins.