— Morgunblaðið/Hákon Pálsson
Það er ekki hægt að segja að veðrið hafi leikið við höfuðborgarbúa, né ferðamenn á svæðinu, í gær. Þessir vegfarendur máttu halda fast í hettur sínar og húfur í baráttunni við rok og rigningu á Skólavörðuholti í gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá

Það er ekki hægt að segja að veðrið hafi leikið við höfuðborgarbúa, né ferðamenn á svæðinu, í gær. Þessir vegfarendur máttu halda fast í hettur sínar og húfur í baráttunni við rok og rigningu á Skólavörðuholti í gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá. Gul viðvörun var í gildi í gær og verður áfram í gildi þar til um klukkan 18 í kvöld. Öllu skaplegri er veðurspáin fyrir fimmtudag og föstudag.