Álftanes Kjartan Atli Kjartansson hefur náði góðum árangri.
Álftanes Kjartan Atli Kjartansson hefur náði góðum árangri. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjartan Atli Kjartansson mun þjálfa áfram körfuboltalið Álftaness en undir hans stjórn vann liðið sannfærandi sigur í 1. deild karla og leikur í fyrsta skipti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Hann staðfesti það við Vísi í gær þegar tilkynnt var…

Kjartan Atli Kjartansson mun þjálfa áfram körfuboltalið Álftaness en undir hans stjórn vann liðið sannfærandi sigur í 1. deild karla og leikur í fyrsta skipti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Hann staðfesti það við Vísi í gær þegar tilkynnt var að hann myndi hætta sem umsjónarmaður Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport. Kjartan hefur þegar fengið Hörð Axel Vilhjálmsson landsliðsmann til Álftaness og von er á frekari liðsauka á næstu dögum.