Ítalía Albert Guðmundsson leikur með ítalska liðinu Genoa.
Ítalía Albert Guðmundsson leikur með ítalska liðinu Genoa. — Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson var í gær orðaður við ítalska stórliðið AC Milan í Primocanale, staðarfjölmiðli í Genoa. Albert átti mjög gott tímabil með Genoa í vetur en liðið vann sér sæti í A-deildinni

Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson var í gær orðaður við ítalska stórliðið AC Milan í Primocanale, staðarfjölmiðli í Genoa. Albert átti mjög gott tímabil með Genoa í vetur en liðið vann sér sæti í A-deildinni. Langafi og alnafni Alberts lék með AC Milan fyrir 75 árum en Albert eldri var fyrsti íslenski atvinnumaðurinn og lék í Frakklandi og á Ítalíu á árunum 1947 til 1954 en áður sem áhugamaður með Rangers og Arsenal.