LeBron James, einn besti körfuboltamaður sögunnar, íhugar, að sögn ESPN, að leggja skóna á hilluna eftir ósigur LA Lakers á heimavelli, 111:113, gegn Denver Nuggets í fyrrinótt. Denver vann þar með einvígi liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA, 4:0, og leikur til úrslita um NBA-titilinn
LeBron James, einn besti körfuboltamaður sögunnar, íhugar, að sögn ESPN, að leggja skóna á hilluna eftir ósigur LA Lakers á heimavelli, 111:113, gegn Denver Nuggets í fyrrinótt. Denver vann þar með einvígi liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA, 4:0, og leikur til úrslita um NBA-titilinn. LeBron er 38 ára og er samningsbundinn Lakers til næstu tveggja ára. Hann skoraði 40 stig í leiknum gegn Denver sem var síðasti leikurinn á 20. tímabili hans í NBA.