Markvörður Aron Rafn Eðvarðsson varði afar vel í gærkvöldi.
Markvörður Aron Rafn Eðvarðsson varði afar vel í gærkvöldi. — Ljósmynd/Kristinn Steinn
Aron Rafn Eðvarðsson stóð vaktina afar vel í marki Hauka í 27:24-heimasigrinum á ÍBV í fjórða leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta í gærkvöldi. Ráðast úrslitin í oddaleik í Vestmannaeyjum annað kvöld, eftir að ÍBV komst í 2:0 í einvíginu

Aron Rafn Eðvarðsson stóð vaktina afar vel í marki Hauka í 27:24-heimasigrinum á ÍBV í fjórða leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta í gærkvöldi. Ráðast úrslitin í oddaleik í Vestmannaeyjum annað kvöld, eftir að ÍBV komst í 2:0 í einvíginu.

„Auðvitað leið manni ekki vel í stöðunni 2:0. Persónulega fannst mér ég ekki spila vel í fyrstu tveimur leikjunum. Maður hugsaði um nokkra bolta þegar maður lagðist á koddann. Við vissum samt að þetta væri ekki búið og þetta er ekki enn þá búið. Staðan er 2:2 og þetta er vegferð sem við erum á,“ sagði Aron þegar hann ræddi við Morgunblaðið eftir leik.

Hann sagði fáa hafa haft trú á Haukaliðinu eftir fyrstu tvo leikina, en leikmenn og þjálfarar liðsins voru ekki af baki dottnir.

„Það voru allir búnir að missa trúna nema við. Það hefði verið auðvelda leiðin að leggjast niður og gefast upp. Við erum hins vegar íþróttamenn og við gefumst ekki upp. Við vorum staðráðnir í að koma til baka,“ sagði hann.

Rétt eins og í þriðja leik í Vestmannaeyjum komust Haukar snemma yfir og létu forystuna aldrei af hendi í gær. Haukarnir komust í 5:1 og var munurinn minnstur þrjú mörk, í lokin, eftir það. „Þetta var ekkert ósvipað síðasta leik. ÍBV gefst aldrei upp, en við náðum að vera klókir og rólegir á boltanum.“

Aron varð Íslandsmeistari með ÍBV árið 2018 og er fullur eftirvæntingar fyrir oddaleik í Vestmannaeyjum. „Það er geðveikt. Ég er ekkert eðlilega spenntur að fara í oddaleik í Vestmannaeyjum. Þetta verður eitthvað ótrúlegt og eitthvað sem hefur ekki sést áður í íslenskum handbolta,“ sagði Aron.