Kristinn Ólafsson
Kristinn Ólafsson
Kristinn Ólafsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Sólheima ses. frá og með 1. júní nk. til fimm ára. Tekur hann við af Kristínu B. Albertsdóttur sem hefur gegnt stöðunni síðustu fimm árin

Kristinn Ólafsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Sólheima ses. frá og með 1. júní nk. til fimm ára. Tekur hann við af Kristínu B. Albertsdóttur sem hefur gegnt stöðunni síðustu fimm árin.

Kristinn, sem hefur verið rekstrarstjóri á Sólheimum frá því í janúar á þessu ári, er viðskiptafræðingur að mennt. Hann lauk BBA-prófi í viðskiptafræði af upplýsingatæknisviði frá Andrews Univiersity, Michigan í Bandaríkjunum og M.Sc.-námi í stjórnun og stefnumótun frá HÍ.