— Morgunblaðið/Kristján H. Johannessen
Krakkarnir á leikskólanum Hjalla í Hafnarfirði héldu í gær upp á vorhátíð skólans og buðu af því tilefni foreldrum og systkinum í heimsókn. Í þann mund sem hátíðin var að hefjast viku skýin fyrir heiðum himni og glampandi sól

Krakkarnir á leikskólanum Hjalla í Hafnarfirði héldu í gær upp á vorhátíð skólans og buðu af því tilefni foreldrum og systkinum í heimsókn. Í þann mund sem hátíðin var að hefjast viku skýin fyrir heiðum himni og glampandi sól. Það má því segja að vorhátíð krakkanna hafi skyndilega breyst í sannkallaða sumargleði.

Á hátíðina mættu listamenn frá Sirkus Íslands, m.a. hinn stórskemmtilegi Wally sem hélt uppi stuðinu með miklum tilþrifum.