Hildur Björnsdóttir
Ríki og sveitarfélög gera ráð fyrir uppbyggingu 35.000 íbúða hérlendis næstu tíu árin. Hlutdeild Reykjavíkurborgar í uppbyggingaráformunum verði 36%, eða sem nemur 2.000 íbúðum árlega fyrstu fimm árin en 1.200 íbúðum árlega síðari fimm árin. Þessi metnaðarfullu markmið eru nauðsynleg, enda margra ára uppsöfnuð húsnæðisþörf í borginni sem er löngu tímabært að bregðast við. En munu áætlanir borgarinnar ganga eftir?
Borgin getur gripið til aðgerða
Á borgarstjórnarfundi síðastliðinn þriðjudag sagði borgarstjóri að Reykjavíkurborg myndi ekki standa uppbyggingarhraða húsnæðis fyrir þrifum – fyrst og fremst myndi hraðinn taka mið af aðgengi verktaka að lánsfé hverju sinni. Varpaði hann þar ábyrgðinni alfarið yfir á lánastofnanir. Fjármögnun húsnæðisuppbyggingar mun sannarlega vera áhrifaþáttur næstu misserin, en ekki má gera lítið úr ábyrgð borgarinnar. Uppbyggingarhraði mun jafnframt vera órjúfanlega samofinn lóðaframboði hverju sinni, sveigjanleika í uppbyggingarskilmálum og afgreiðsluhraða innan stjórnkerfisins. Allt eru þetta þættir sem borgin hefur á sínu forræði – og þættir þar sem töluvert svigrúm er til framfara.
Hafna lausnum í miðri krísu
Mikil eftirspurn er eftir hagkvæmu húsnæði um land allt. Fáir aðilar fá hins vegar tækifæri til að standa að uppbyggingu hagkvæms húsnæðis, og takmarkaður hópur á rétt til búsetu í slíku húsnæði.
Það skaut því skökku við á dögunum þegar stórt verktakafyrirtæki óskaði eftir lóð hjá Reykjavíkurborg til að reisa níu hundruð hagkvæmar íbúðir. Hönnun og undirbúningi íbúðanna væri þegar lokið – eingöngu þyrfti lóðir svo hefja mætti uppbygginguna. Reykjavíkurborg hafnaði beiðninni með þeim rökum að lóðum væri almennt úthlutað í útboðum. Samhliða var fullyrt að nægt lóðaframboð væri í Reykjavík.
Vart er hægt að taka undir þá fullyrðingu að nægt sé lóðaframboðið, enda hvergi aðgengilegar upplýsingar um útboð á lóðum um þessar mundir. Jafnframt hefur borgin ítrekað úthlutað lóðum og byggingarheimildum án útboðs á undanförnum árum. Það virðist hægt að sveigja reglurnar fyrir vildarvini, en ekki stönduga aðila sem sýna vilja og bolmagn til að svara eftirspurn á húsnæðismarkaði – í miðri húsnæðiskrísu.
Virkjum kraft þeirra framtakssömu!
Húsnæðismálin eru ein stærsta áskorun sem við munum standa frammi fyrir næsta áratuginn. Svo mæta megi uppsafnaðri húsnæðisþörf, og fyrirséðri þörf til framtíðar, verður nauðsynlegt að bregðast við af krafti með áþreifanlegum aðgerðum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ítrekað bent á spennandi tækifæri til húsnæðisuppbyggingar á eftirsóttum svæðum í borginni. Mætti þar nefna Örfirisey, Kjalarnes, Staðarhverfi í Grafarvogi og Úlfarsárdal. Við höfum líka nefnt mikilvægi þess að tryggja sveigjanlegri skipulagsskilmála, hraðari málsmeðferð og liprari stjórnsýslu. Jafnframt mætti huga að lægri álögum, sem skipt geta sköpum nú þegar byggingarkostnaður fer sífellt hækkandi. En ekki síst verður nauðsynlegt að virkja kraft þeirra framtakssömu – sem bjóða samvinnu um eftirsóttar lausnir á húsnæðismarkaði – ekki vísa þeim á dyr.
Árangur í samstarfi við einkaframtak
Metnaðarfullum markmiðum í húsnæðismálum verður ekki náð nema til komi raunhæfar aðgerðir. Mæta þarf húsnæðisþörfinni með kröftugri framfylgd húsnæðisáætlana samhliða skipulagi nýrra svæða, í öflugu samstarfi við einkaframtak. Tryggja þarf sveigjanlegri skipulagsskilmála, stafrænar lausnir, lipurri stjórnsýslu og lægri álögur fyrir byggingariðnað í Reykjavík. Einungis þannig náum við raunverulegum árangri.
Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.