Þórarinn Eyfjörð
Þórarinn Eyfjörð
Björn Bjarnason fjallar á vef sínum um verkfall BSRB og rekur fréttaflutning Vísis af málinu: „Í fréttinni er vitnað í Þórarin Eyfjörð, varaformann BSRB, sem rætt var við í kvöldfréttum Stöðvar 2 mánudaginn 5. júní.

Björn Bjarnason fjallar á vef sínum um verkfall BSRB og rekur fréttaflutning Vísis af málinu: „Í fréttinni er vitnað í Þórarin Eyfjörð, varaformann BSRB, sem rætt var við í kvöldfréttum Stöðvar 2 mánudaginn 5. júní.

Í upphafi svarar Þórarinn spurningu um hvort BSRB hafi ekki misst af lestinni með því að hafna aðild að samningi Starfsgreinasambandsins í desember 2022 og þar með ekki fengið launahækkun í þrjá mánuði, hvort sanngjarnt sé að krefjast afturvirkni nú. Í svari sínu segir Þórarinn að aðfaranótt 9. mars 2020, hamfaranótt hjá ríkissáttasemjara í COVID-faraldrinum, hafi verið gerð mistök, ekki í fyrsta sinn við gerð samninga. Um leiðréttingu mistakanna hafi ekki náðst sátt [og] þess vegna sé hluti starfsmanna með lægri laun en aðrir. Það stríði „gegn öllum lögmálum um launagreiðslur á vinnumarkaði“.“

Björn heldur áfram: „Sé það rétt að þetta sé allt stór misskilningur bæði vegna mistaka í COVID og vegna rangrar hugtakanotkunar – mál sem hefði átt að afgreiða í kyrrþey milli aðila með viðurkenningu á mistökum – verður enn undarlegra en ella að lausn hafi ekki fundist. Að félagsmenn BSRB láti til skarar skríða með verkfallsaðgerðum af þeim þunga sem kynntur var um helgina bendir til að eitthvað meira hangi á spýtunni en af er látið – líklega er það þó enn einn misskilningurinn.

Þeir einu sem misskilja ekki neitt eru þeir sem glíma við daglegan vanda vegna verkfallsins. Það bitnar helst á foreldrum ungra barna. Hvers eiga þeir að gjalda vegna mistaka og rangrar hugtakanotkunar?“