Guðjón Valur Sigurðsson var í gær útnefndur þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni í handbolta. Guðjón var einnig útnefndur þjálfari ársins í 2. deildinni á síðustu leiktíð, er hann stýrði Gummersbach upp í efstu deild
Guðjón Valur Sigurðsson var í gær útnefndur þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni í handbolta. Guðjón var einnig útnefndur þjálfari ársins í 2. deildinni á síðustu leiktíð, er hann stýrði Gummersbach upp í efstu deild. Liðinu hefur vegnað vel á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, því Gummersbach er í tíunda sæti með 32 stig eftir 33 leiki. Var liðið aldrei í fallbaráttu á tímabilinu, þrátt fyrir að vera nýliði í deildinni.