Þrenna Arna Sól Sævarsdóttir fagnar marki í Kórnum í gær.
Þrenna Arna Sól Sævarsdóttir fagnar marki í Kórnum í gær. — Morgunblaðið/Eggert
HK fór í gærkvöldi upp í toppsæti 1. deildar kvenna í fótbolta með 6:1-stórsigri á KR. Arna Sól Sævarsdóttir skoraði þrennu fyrir HK og Eva Stefánsdóttir, Emma Sól Aradóttir og Isabella Eva Aradóttir komust einnig á blað

HK fór í gærkvöldi upp í toppsæti 1. deildar kvenna í fótbolta með 6:1-stórsigri á KR. Arna Sól Sævarsdóttir skoraði þrennu fyrir HK og Eva Stefánsdóttir, Emma Sól Aradóttir og Isabella Eva Aradóttir komust einnig á blað.

HK nýtti sér að Víkingur, sem var með fullt hús stiga fyrir gærkvöldið, tapaði fyrir Aftureldingu á heimavelli, 2:3. Hildur Karítas Gunnarsdóttir skoraði tvö fyrir Aftureldingu. Nánar á mbl.is/sport/efstadeild/.