Að hafa e-ð fram er að koma e-u í gegn, fá e-u framgengt, fá e-ð fram. „Ég vildi hafa saltkjöt í kvöldmatinn en konan mín hafði það fram að við borðuðum gulrótasúpu.“ Að fara sínu fram merkir að gera það sem maður sjálfur vill – oft í trássi við…

hafa e-ð fram er að koma e-u í gegn, fá e-u framgengt, fá e-ð fram. „Ég vildi hafa saltkjöt í kvöldmatinn en konan mín hafði það fram að við borðuðum gulrótasúpu.“ Að fara sínu fram merkir að gera það sem maður sjálfur vill – oft í trássi við aðra. „Það er sama hvað honum er bannað, hann fer sínu fram.“