Netverslunin Heimkaup hefur náð samkomulagi við rafbókavettvanginn (e.platform) Vital Source um einkasölu á Íslandi fyrir allt rafrænt efni sem hann býður upp á. Í tilkynningu frá Heimkaupum segir að Vital Source, sem sé stærsti aðili á þessu sviði í heimi, bjóði upp á 1,1 milljón titla. Segir Sigurður Pálsson verkefnastjóri hjá Heimkaupum að fyrirtækið sé stolt af samkomulaginu og viðurkenningunni sem í því felst.
Sigurður segir að samningurinn þýði að helsti keppinautur Heimkaupa á sviði rafrænna námsbóka, Bóksala stúdenta, hafi nú ekki lengur aðgang að rafrænu námsefni frá Vital Source. Samstarfi við hana hafi verið slitið. tobj@mbl.is