Meistari Óðinn Þór Ríkharðsson varð svissneskur meistari í gær.
Meistari Óðinn Þór Ríkharðsson varð svissneskur meistari í gær. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Óðinn Þór Ríkharðsson og Aðalsteinn Eyjólfsson fögnuðu í gærkvöldi svissneska meistaratitlinum í handbolta með 32:28-heimasigri á Kriens. Kadetten vann úrslitaeinvígið 3:1 og meistaratitilinn í leiðinni

Óðinn Þór Ríkharðsson og Aðalsteinn Eyjólfsson fögnuðu í gærkvöldi svissneska meistaratitlinum í handbolta með 32:28-heimasigri á Kriens. Kadetten vann úrslitaeinvígið 3:1 og meistaratitilinn í leiðinni. Óðinn skoraði fimm mörk í gær, þar af fjögur úr vítum. Aðalsteinn var að þjálfa liðið í síðasta sinn, en Óðinn skrifaði á dögunum undir langtímasamning við félagið. Aðalsteinn hefur samþykkt að taka við þýska liðinu Minden.