Helguvík Áætlað er að viðlegukanturinn verði 390 metrar að lengd og myndi hann þjónusta herskip aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins.
Helguvík Áætlað er að viðlegukanturinn verði 390 metrar að lengd og myndi hann þjónusta herskip aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. — Morgunblaðið/Hákon
Áætlað er að reisa 390 metra langan viðlegukant í Helguvík á Reykjanesskaga fyrir herskip Atlantshafsbandalagsins. Einnig er gert ráð fyrir að koma þar á fót 25.000 rúmmetra eldsneytisbirgðageymslu. Framkvæmdin yrði upp á fimm milljarða króna, án virðisaukaskatts

Áætlað er að reisa 390 metra langan viðlegukant í Helguvík á Reykjanesskaga fyrir herskip Atlantshafsbandalagsins. Einnig er gert ráð fyrir að koma þar á fót 25.000 rúmmetra eldsneytisbirgðageymslu.

Framkvæmdin yrði upp á fimm milljarða króna, án virðisaukaskatts. Verkefnið verður unnið í samvinnu Atlantshafsbandalagsins, utanríkisráðuneytisins, Reykjanesbæjar, Reykjaneshafnar og varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar.

Ekki eru komnar teikningar fyrir framkvæmdina og enn er undirbúningsvinna eftir, fram á næsta ár.

Bæjarráð Reykjanesbæjar fundaði í gær og tók vel í fyrirhugaða framkvæmd. Ekki er komið að þeim tímapunkti þar sem sveitarfélagið samþykkir framkvæmdina en oddviti Sjálfstæðisflokksins, Margrét Sanders, og oddviti Samfylkingarinnar, Friðjón Einarsson, fagna þessu. Miðað við hvernig málið líti nú út sé lítið því til fyrirstöðu að samþykkja. Verkefnið er á vegum Atlantshafsbandalagsins og byggist á þörf fyrir eldsneytisbirgðir á Norður-Atlantshafi. hng@mbl.is