Örn Sigurðsson
Örn Sigurðsson
Á Fróni eru kjósendur ekki jafnir fyrir valdinu til að hafa áhrif á eigin örlög. Minnihluti kjósenda á landsbyggðinni býr við aukið vægi atkvæða.

Örn Sigurðsson

Núverandi ríkisstjórn KaBjaSi, sem nýtur aukins atkvæðavægis, bregður ítrekað fæti fyrir tilraunir kjósenda til að bæta lýðræðið. Þessi ráðandi öfl verja gömlu stjórnskipunina með kröfu um aukinn meirihluta á Alþingi en hafna á sama tíma niðurstöðu þjóðaratkvæðis um tillögu að nýrri stjórnarskrá, sem samþykkt var með meira en auknum meirihluta atkvæða 2012. Það þurfi jú að ná víðtækri sátt!

Ísland uppfyllir ekki grunnforsendu lýðræðisins þótt oft sé rætt um landið sem háþróað lýðræðisríki. En líklega ruglast margir erlendir menn af fjálglegu tali innfæddra um hið forna Alþingi.

2.500 ára gömul hugmynd

Hugmyndin um lýðræði er a.m.k. 2.500 ára gömul. Hún er kjarni kenninga í heimspeki frá fornöld til nútímans. Lýðræði er grunnur stjórnarskráa og alþjóðasáttmála um frelsi, jöfnuð og mannréttindi. Að allir menn séu jafnir í hvívetna er miðlæg forsenda lýðræðisins.

Á Fróni eru kjósendur ekki jafnir fyrir sjálfu valdinu til að hafa áhrif á eigin örlög. Minnihluti kjósenda á landsbyggðinni býr við aukið vægi atkvæða í kosningu til Alþingis. Valdið, sem þessu fylgir, er mikið og það er allt of oft notað og misnotað af mikilli hörku og óvægni.

Handhafar aukins vægis atkvæða hafa frá lokum seinna stríðs misbeitt þessu illa fengna valdi til að festa herflugvöll í Vatnsmýri með skelfilegum afleiðingum. Gerendurnir eru þó ómeðvitaðir um að illvirkið bitnar ekki síður á þeim sjálfum en á borgarbúum.

Stjórnlaus útþensla og fjórföld landþörf borgarbyggðar, tvöfaldur kostnaður og tímasóun allra, mikil röskun landsbyggðar, þrefaldur landflótti á við aðrar Norðurlandaþjóðir, mikil bílaeign, mengun og útblástur CO2, glötuð tækifæri, lakari efnahagur, verri lýðheilsa og skert lífsgæði. Allt miðað við það, sem ella væri án herflugvallar.

Ráðandi öfl þriggja landsmálaflokka, sem nú eru við völd, móta þjóðfélagsumræðuna út frá meintum hagsmunum handhafa aukins vægis atkvæða. Flestir fjölmiðlar fylgja þessum meginstraumi en enginn jafn dyggilega og Ríkisútvarpið, RÚV, útvarp allra landsmanna.

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, og Feneyjanefnd Evrópuráðsins hafa oft bent íslenskum stjórnvöldum á að misvægi atkvæða samræmist ekki grunngildum þessara útvarða mannréttinda og lýðræðis í Evrópu, sem Ísland er þó aðili að. Ábendingarnar falla af ráðandi öflum líkt og vatn af gæs.

Misvægi atkvæða

Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins í Hörpu 16. og 17. maí sl. sendu Samtök um betri byggð, BB, mannréttindafulltrúa ráðsins í Strassborg bréf. Þar er lýst skelfilegum áhrifum af kerfislægri bjögun misvægis atkvæða á samfélag og innviði. Samtökin óskuðu aðstoðar Katrínar forsætisráðherra og Þórdísar utanríkisráðherra við að koma bréfinu til skila.

Vofa gamla bændasamfélagsins svífur enn yfir vötnum þótt vistarbandi hafi lokið um 1900 og nútíma stjórnmál hafist með Heimastjórn 1904. Hannes Hafstein ráðherra lagði fram á Alþingi 1905 og aftur 1907 tillögu um að leiðrétta kosningalög og jafna jafna vægi atkvæða en hafði ekki erindi sem erfiði.

Í umræðum um tillögu Hannesar á Alþingi var varað við því að héldi misvægið áfram hlytist af því mikill skaði í íslensku samfélagi. Sú spá hefur sannarlega ræst. Frá þeim tíma, í meira en heila öld, hefur mjög margt farið úrskeiðis, sem að einhverju eða verulegu leiti má rekja til misvægisins.

Stjórnmál og stjórnsýsla einkennast einkum af því að í íslensku lagasafni eru á árinu 2023 um 800 virk lög sem öll hafa verið samþykkt á Alþingi við mikið misvægi atkvæða. Frá lýðveldistöku til 2000 var misvægið a.m.k. 300% en frá aldamótum til þessa dags 100%. Það er að sjálfsögðu galið.

Sum lög eru hlutlaus með tilliti til atkvæðavægis en of mörg eru mörkuð af misvæginu og verulega þungbær hinum valdalausu á suðvesturhorninu. Reglulega, jafnvel árlega, berast Alþingi t.d. fjárlög og áætlanir með mikilli landsbyggðarslagsíðu. Og iðulega berast tillögur að norðan, frá Akureyri, um að svipta Reykvíkinga skipulagsvaldinu. Nýtt innlegg er reglubundin samgönguáætlun Sigurðar Inga innviðaráðherra. Afar slæm fyrir fórnarlömb misvægis atkvæða.

Fræðimenn benda á að í þingkosningum uppskeri Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur að jafnaði nokkra þingmenn umfram kjörfylgi sitt fyrir tilstuðlan atkvæðamisvægis og eigi þar af leiðandi greiðari aðgang að stjórnarsetu, valdi og áhrifum. Þetta er auðvitað fjarstæðukennd afskræming lýðræðisins.

Á 63 löggjafarþingum 1954-2009 átti höfuðborgarsvæðið, HBS, að meðaltali innan við tvö sæti af níu í samgöngunefnd Alþingis og innan við þrjú sæti af 11 í fjárlaganefnd þingsins. Á 30 þingum af þessum 63 var enginn nefndarmaður af HBS í samgöngunefnd og á níu þingum af 63 enginn af HBS í fjárlaganefnd. Kjöraðstæður fyrir sjálftöku og óheft kjördæmapot.

Á þessu tímabili eins og svo oft, bæði fyrr og síðar, var illa farið með lausafjármuni íslenska ríkisins í stjórnlausu kjördæmapoti í þessum fastanefndum Alþingis. Úthlutun fjár til vegaframkvæmda var t.d. með þeim fjarstæðukennda hætti að lítið fékkst fyrir peningana enda var þjóðvegakerfið lélegt og varla nothæft um sl. aldamót.

Höfundur er arkitekt, í framkvæmdastjórn Samtaka um betri byggð (BB).

Höf.: Örn Sigurðsson