Sælkeraverslun Smáframleiðendur á hjólum fara um víðan völl í sumar.
Sælkeraverslun Smáframleiðendur á hjólum fara um víðan völl í sumar. — Ljósmyndir/Þórhildur M. Jónsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Mist Þormóðsdóttir Grönvold mist@mbl.is Vörusmiðjan er vottað vinnslurými fyrir smáframleiðendur, staðsett á Skagaströnd. Henni var komið á laggirnar árið 2016 með þann tilgang að ýta undir nýsköpun og nýtingu hráefna á Norðvesturlandi.

Mist Þormóðsdóttir Grönvold

mist@mbl.is

Vörusmiðjan er vottað vinnslurými fyrir smáframleiðendur, staðsett á Skagaströnd. Henni var komið á laggirnar árið 2016 með þann tilgang að ýta undir nýsköpun og nýtingu hráefna á Norðvesturlandi.

Undanfarin sjö ár hafa umsvif smiðjunnar stóraukist, en í dag býður hún upp á ýmiss konar úrræði fyrir smáframleiðendur: fræðslu, námskeið og aðstöðu til framleiðslu og sölu afurða, sem fer fram bæði á netinu og á hjólum.

Vilja efla og auka nýsköpun

„Þetta hófst sem verkefni til þess að efla og auka nýsköpun á svæðinu,“ segir Þórhildur Margrét Jónsdóttir, verkefnastýra Vörusmiðjunnar. Eftir að hafa fengið styrk frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra til þess að fjármagna framtakið hóf Vörusmiðjan að setja upp námskeið og fræðslu fyrir smáframleiðendur. Markmiðið með framtakinu, sem er ekki hagnaðardrifið að sögn Þórhildar, er að gefa smáframleiðendum tækifæri og aðstöðu til þess að auka kunnáttu sína og koma sér á framfæri.

Framleiðendum Vörusmiðjunnar fjölgaði ört með árunum og í kjölfarið var farið af stað með netverslun. Með netversluninni kviknaði sú hugmynd að dreifa sölu smáframleiðendanna víðar, en árið 2020 var Vörusmiðjunni veitt viðbótarfjármagn fyrir verkefnið „Smáframleiðendur á ferðinni“.

Sælkeraverslun á hjólum

Smáframleiðendur á ferðinni er sælkeraverslun á hjólum. Í versluninni, sem ferðast hefur um Norðvesturland og víðar undanfarin þrjú ár, er að finna fjölbreytt úrval ólíkra afurða um 20 smáframleiðenda sem búsettir eru um land allt, þó aðallega á Norðvesturlandi.

Að sögn Þórhildar hefur sælkeraverslun Vörusmiðjunnar fengið mjög góðar viðtökur. „Þú stígur bara inn í ótrúlega fína verslun þar sem boðið er upp á alls konar ólíkar afurðir,“ segir Þórhildur og bætir við að versluninni hafi verið líkt við galdratösku barnfóstrunnar kunnu, Mary Poppins, þar sem finna má allt sem hugurinn girnist.

Nóg um að vera í sumar

Ferðaáætlun smáframleiðendanna hefur verið gerð opinber á heimasíðu Vörusmiðjunnar, en einnig er hægt að finna vörurnar í minjagripaverslunum og á veitingastöðum víða um Norðurland. Loks bætir Þórhildur við að fólk geti skráð sig á lista sem sendi tilkynningu í símann daginn áður en bíllinn kemur að ákveðnum áfangastað svo enginn missi af því sem smáframleiðendurnir hafa upp á að bjóða.

Höf.: Mist Þormóðsdóttir Grönvold