Sund Á Íslandi eru tiltölulega fáir sem drukkna miðað við í öðrum löndum.
Sund Á Íslandi eru tiltölulega fáir sem drukkna miðað við í öðrum löndum. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Ég vona að mönnum auðnist sú gæfa að víkja frá þessari stefnu,“ segir Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, um fyrirhugaðar breytingar á sundkennslu í Reykjavík og víðar um landið

Hörður Vilberg

hordur@mbl.is

„Ég vona að mönnum auðnist sú gæfa að víkja frá þessari stefnu,“ segir Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, um fyrirhugaðar breytingar á sundkennslu í Reykjavík og víðar um landið.

Hilmar segir að sér hafi brugðið við fréttirnar, en stöðuprófum er meðal annars ætlað að leysa hefðbundna sundkennslu af hólmi í eldri bekkjum grunnskóla.

Sundkennsla á Íslandi var tekin upp á fyrstu áratugum síðustu aldar í kjölfar tíðra sjóslysa við Íslandsstrendur með tilheyrandi mannskaða. „Það var vitað til þess að sjómenn drukknuðu í flæðarmálinu af því að þeir kunnu ekki að synda,“ segir Hilmar sem segir málið snerta alla þjóðina.

„Við erum með þjóð sem er 95% synd og það skiptir gríðarlega miklu máli.“ Ástæða breytinganna er sögð vera kvíði og vanlíðan ungmenna vegna sundkennslu og sturtuferða. » 10

Höf.: Hörður Vilberg