Norður
♠ D102
♥ Á
♦ ÁG1052
♣ 10532
Vestur
♠ 87
♥ 63
♦ KD987643
♣ G
Austur
♠ ÁG63
♥ KG104
♦ –
♣ ÁD987
Suður
♠ K954
♥ D98752
♦ –
♣ K64
Suður spilar 4♥ dobluð.
Vestur opnar á 3♦, norður passar og austur líka. „Þetta gerist allt hratt og áreynslulaust,“ segir Óskar ugla og dreifir útprenti af suðurhendinni til kaffigesta.
Magnús mörgæs: „Ég dobla ekki með eyðu.“
Gölturinn: „Ég segi þrjú hjörtu.“
Haraldur háfleygi: „Ég melda ekki á svona lélegan lit.“
Spilið er frá undanúrslitum opna flokksins í Strassborg og þeir fjórir keppendur sem fengu þetta viðfangsefni við borðið sögðu allir 3♥. „Auðvitað.“ Gölturinn var ánægður með sig: „Það verður að gera fleira en gott þykir.“
En málinu var ekki þar með lokið. Á þremur borðum taldi norður sig eiga fyrir 3G og þá vaknaði austur til lífsins og uppskar 800-1100 í 4♥ dobluðum. Aðeins Eric Mauberquez sagði pass við 3♥ og stórgræddi á þeirri gætilegu ákvörðun.