Brynhildur Guðjónsdóttir hefur verið endurráðin sem leikhússtjóri Borgarleikhússins frá 1. ágúst 2023 til 31. júlí 2027, með vísan í samþykktir Leikfélags Reykjavíkur þar sem heimilt er að endurráða leikhússtjóra til fjögurra ára. Brynhildur hefur gegnt stöðunni frá febrúar 2020.
„Brynhildur hefur staðið sig fádæma vel í þessu starfi undanfarin ár við krefjandi aðstæður. Til viðbótar við sína listrænu forystu hefur hún sýnt afburða stjórnunarhæfileika og siglt leikhúsinu í gegnum fjölbreytt öldurót,“ segir Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður LR, í tilkynningu frá leikhúsinu.
„Ég þakka stjórn LR innilega sýndan heiður og traust. Borgarleikhúsið er kröftug og lifandi menningarstofnun þar sem samheldinn og framúrskarandi hópur fólks vinnur að því að skapa góða list, gleðja og næra. Starf leikhússtjórans er vissulega krefjandi en um leið gefandi og stundum jafnvel töfrandi. Ég horfi björtum augum til framtíðar og hlakka til að þjóna leikhúsinu okkar og listinni áfram af metnaði og gleði,“ segir Brynhildur.