Þórir Jóhann Helgason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er samkvæmt ítalska fjölmiðlinum Quotidiano di Puglia á leið til AaB í Danmörku í láni frá Lecce á Ítalíu. Sagt er að AaB verði með kauprétt á Þóri og félögin hafi þegar samið um verðið en hvorugt þeirra hefur staðfest fréttina
Þórir Jóhann Helgason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er samkvæmt ítalska fjölmiðlinum Quotidiano di Puglia á leið til AaB í Danmörku í láni frá Lecce á Ítalíu. Sagt er að AaB verði með kauprétt á Þóri og félögin hafi þegar samið um verðið en hvorugt þeirra hefur staðfest fréttina. Þórir fékk fá tækifæri hjá Lecce í ítölsku A-deildinni í vetur. AaB er eitt af stærstu félögum Danmerkur en það féll mjög óvænt niður í B-deildina í vor.