Norður
♠ --
♥ ÁK1087632
♦ D9
♣ D102
Vestur
♠ ÁKD842
♥ 9
♦ G104
♣ G76
Austur
♠ 10965
♥ --
♦ 8653
♣ ÁK984
Suður
♠ G73
♥ DG54
♦ ÁK72
♣ 53
Suður spilar 6♥ dobluð.
Bandarískir gullaldarspilarar beittu allir blekkisögnum við og við, en stíllinn var mismunandi. Howard Schenken (1903-79) var veikur fyrir afbrigðilegum grandmeldingum. Hann hélt á spilum norðurs í tvímenningskeppni árið 1944 með John Crawford (1915-76) sem makker. Crawford opnaði á 1♥ og vestur kom inn á 1♠. Og hvað gerði Schenken?
Hann stökk í 2G. Nú til dags er sögnin 2G gjarnan notuð í annarlegum tilgangi í þessari stöðu, en á þessum tíma var merkingin einföld og skýr: 13-15 punktar og spaðastopp. „Tilgangurinn var að halda A-V á mottunni í fyrirsjáanlegri sagnbaráttu,“ skrifar Fred L. Karpin. Reyndar tókst það ekki sem skyldi, því andstæðingarnir börðust upp í 5♠ og ýttu Schenken í slemmu. En allt í lagi – útspilið var spaðaás og austur þvingaðist í láglitunum þegar Crawford rúllaði niður öllum trompunum í borði.