Þóra Kristín Jónsdóttir, landsliðskona í körfubolta, er búin að skrifa undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Hauka. Hún er 26 ára gamall bakvörður sem hefur leikið með Falcon í Danmörku undanfarin tvö tímabil
Þóra Kristín Jónsdóttir, landsliðskona í körfubolta, er búin að skrifa undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Hauka.
Hún er 26 ára gamall bakvörður sem hefur leikið með Falcon í Danmörku undanfarin tvö tímabil. Hjá Falcon varð Þóra Kristín danskur meistari bæði árin og bikarmeistari fyrra tímabilið. Áður hafði hún leikið með Haukum hér á landi allan sinn feril. Þóra Kristín á að baki 29 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.