Þyngsti bar Íslands Grjótið kemur frá nágrönnum fjölskyldunnar á Brekku og trén stóðu á landi Birkilundar. Þau þurfti að fella til að rýma fyrir nýju gróðurhúsunum sem byggð voru 2022. Trén voru 70 ára gömul og þess vegna synd að þurfa að fella þau en í virðingarskyni var ákveðið að nýta þau til að útbúa barborð og vínrekka. Vínrekkinn tekur um 400 flöskur. Barinn vegur tíu tonn.
Þyngsti bar Íslands Grjótið kemur frá nágrönnum fjölskyldunnar á Brekku og trén stóðu á landi Birkilundar. Þau þurfti að fella til að rýma fyrir nýju gróðurhúsunum sem byggð voru 2022. Trén voru 70 ára gömul og þess vegna synd að þurfa að fella þau en í virðingarskyni var ákveðið að nýta þau til að útbúa barborð og vínrekka. Vínrekkinn tekur um 400 flöskur. Barinn vegur tíu tonn.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vínstofan er staðsett í einu af eldri gróðurhúsum Birkilundar sem búið er að gera á glæsilega yfirhalningu og er í anda Friðheima, í sátt við náttúru og umhverfi. Hjónin Knútur Ármann og Helena Hermundardóttir stofnuðu Friðheima árið 1995 og hafa,…

Sjöfn Þórðardóttir

sjofn@mbl.is

Vínstofan er staðsett í einu af eldri gróðurhúsum Birkilundar sem búið er að gera á glæsilega yfirhalningu og er í anda Friðheima, í sátt við náttúru og umhverfi.

Hjónin Knútur Ármann og Helena Hermundardóttir stofnuðu Friðheima árið 1995 og hafa, ásamt fjölskyldu sinni, rekið fyrirtækið síðan af miklum myndarskap. Á Friðheimum eru ræktaðir tómatar allt árið um kring en þar er einnig rekin lítil hrossarækt. Knútur og Helena opnuðu býlið og gróðurhúsin fyrir ferðamönnum árið 2008. Þau taka á móti gestum allt árið um kring í gróðurhúsakynningar og hádegismat. Þá stendur gestum til boða að mæta í hesthúsið og á hestasýningar.

Hugmyndin kviknaði í covid

Dóttir Knúts og Helenu, Dóróthea Ármann og maki hennar, Kristján Geir Gunnarsson, standa að baki Vínstofunni ásamt foreldrum hennar. Aðspurð segja þau að hugmyndin að Vínstofunni eigi sér ekki langan aðdraganda. „Hugmyndin að vínstofunni kviknaði árið 2020 þegar ferðaþjónustan stöðvaðist á einum degi út af covid. Þá skapaðist svigrúm til þess að nýta tímann og kraftinn í að stækka garðyrkjustöðina. Það eina sem vantaði var meira land. Lukkulega voru nágrannar Friðheima, þau Dagur og Ína, til í að selja sína garðyrkjustöð, gamla Birkilund. Með því fylgdu gömul gróðurhús í ágætu ásigkomulagi sem urðu til þess að fjölskyldan fór að velta fyrir sér í hvað þau gætu nýst til framtíðar. Þannig kviknaði hugmyndin að Vínstofunni,“ segir Dóróthea, sæl á svip.

Framkvæmdir hófust í lok árins 2022 og voru teknar með trukki, því Friðheimafjölskyldan vildi opna Vínstofuna sumarið 2023. „Við erum svo heppin að hafa einvalalið iðnaðarmanna með okkur í liði og því gekk allt hratt og vel,“ segir Dóróthea. „Hönnun Vínstofunnar kom eiginlega af sjálfri sér en við fjölskyldan hjálpuðumst öll að við að henda á milli okkar hugmyndum ásamt frábæra smiðnum okkar, Karli Jóhanni Bridde, sem kom með góðar hugmyndir á færibandi og framkvæmdi þær líka. Hann á mjög stóran part af hönnuninni ásamt okkur,“ heldur Dóróthea áfram.

Flétta inn matar- og vínupplifun

Vínstofan er hugsuð sem samkomuhús fyrir sveitunga og aðra góða gesti. Þangað er hægt að mæta í drykk, hitta fólk, njóta stundarinnar eða bara glugga í bók en stór og falleg bókahilla rammar inn sviðið. „Vínstofan er einnig hugsuð sem vinnustofa en þar eru þrjú fullbúin fundarherbergi, tilvalin fyrir fundi, vinnustofur og námskeið. Með haustinu stendur til að flétta inn matar- og vínupplifun með sögustund sem hentar vel fyrir einstaklinga og litla hópa og þannig fléttast Vínstofan inn í ferðaþjónustuna á Friðheimum. Að lokum er þetta auðvitað fullkominn staður fyrir viðburði eins og tónleika, uppistand, brúðkaup og áfram mætti lengi telja,“ segir Dóróthea.

Mikill metnaður hefur verið lagður í vínseðil Vínstofunnar og boðið er upp á eðalvín sem eiga sögu og gæðin eru í fyrirrúmi. Vínseðillinn spannar núna 17 blaðsíður og lengist enn. Meðal vína sem í boði eru, er kampavínið Philipponnat sem Stefán Einar Stefánsson hjá Kampavínsfjelaginu flytur inn frá kampavínshéraðinu í Frakklandi og nýtur mikilla vinsælda.

Lyftistöng fyrir samfélagið

Vínstofan á Friðheimum var opnuð með pompi og prakt á dögunum þar sem gestir fögnuðu með fjölskyldunni og samstarfsfólki þeirra. Vínstofan er kærkomin viðbót í flóruna og ákveðin lyftistöng fyrir samfélagið. „Við erum fyrst og fremst spennt fyrir þessum nýja kafla í okkar fyrirtækjarekstri en Vínstofan er að mörgu leyti mjög samfélagslegt verkefni með það að markmiði að auðga okkar samfélag, þorpið okkar og nágrenni og síðan sameina sveitunga og ferðamenn. Eins erum við að taka nýjan vinkil á fyrirtækið okkar. En svo erum við auðvitað líka bara mjög stolt. Við erum búin að leggja mikla vinnu í þetta verkefni okkar og dagsverkin voru mörg undanfarnar vikur. Við vorum búin að einsetja okkur að opna í júní og það tókst. Við opnuðum 30. júní. Nú er bara að halda áfram, við erum rétt að byrja,“ segir Dóróthea að lokum.

Vínstofan er opin alla daga frá kl. 13:00 til 22:00 og allir hjartanlega velkomnir. Hægt er að fylgjast með viðburðum á dagskrá Vínstofunnar á Instagram-síðunni @vinstofa.fridheimar.

Höf.: Sjöfn Þórðardóttir