30 ára Guðlaug María fæddist í Reykjavík en ólst mestmegnis upp í Hafnarfirði þar sem hún býr enn. Hún var mikið fyrir íþróttir og var í fótbolta þegar hún var yngri og stundaði einnig taekwondo, auk hefðbundinnar skólagöngu. Guðlaug vinnur í leikskólanum Álfabergi í Hafnarfirði. Hún á tvo unga syni og mikill tími fer í að sinna fjölskyldunni eins og gefur að skilja, en þegar lausar stundir gefast þá hefur hún mjög gaman af því að prjóna og eins fer fjölskyldan oft í útilegur.
Fjölskylda Sambýlismaður Guðlaugar er Úlfar Breki Gunnarsson, f. 1993, sorphirðir í Hafnarfirði. Þau eiga synina Gunnar Breka, f. 2015, og Heiðar Örn, f. 2020. Foreldrar Guðlaugar Maríu eru Rós Magnúsdóttir, f. 1973, lagerstjóri hjá Ora, búsett í Hafnarfirði, og Magnús Ísleifsson, f. 1965, búsettur í Grindavík.