Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur gert eina breytingu á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki, gegn Finnlandi og Austurríki, síðar í mánuðinum. Miðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir, sem samdi…
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur gert eina breytingu á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki, gegn Finnlandi og Austurríki, síðar í mánuðinum. Miðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir, sem samdi nýverið við Íslands- og bikarmeistara Vals, kemur inn í hópinn í stað Ástu Eirar Árnadóttur, fyrirliða Breiðabliks, sem er meidd. Ásta Eir fór meidd af velli í 4:0-sigri Breiðabliks á Tindastóli í Bestu deildinni á þriðjudag.