Umferð Nýtt umferðarmet var sett á höfuðborgarsvæðinu í júní.
Umferð Nýtt umferðarmet var sett á höfuðborgarsvæðinu í júní. — Morgunblaðið/Eggert
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í júní reyndist 5,2 prósentum meiri en fyrir ári. Ekki hefur áður mælst jafnmikil umferð á svæðinu í einum mánuði, segir Vegagerðin, og reikna megi með að umferðin í ár aukist um 4-5 prósent og yrði það nýtt met í umferðinni verði það niðurstaðan

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í júní reyndist 5,2 prósentum meiri en fyrir ári. Ekki hefur áður mælst jafnmikil umferð á svæðinu í einum mánuði, segir Vegagerðin, og reikna megi með að umferðin í ár aukist um 4-5 prósent og yrði það nýtt met í umferðinni verði það niðurstaðan.

Alls fóru að jafnaði rúmlega 187 þús. ökutæki á sólarhring um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar í júní. Gamla metið var rúmlega 183 þús. ökutæki á sólarhring en það var frá því í maí 2022. Sögulega eru maí og september umferðarmestu mánuðir á höfuðborgarsvæðinu svo það er möguleiki á að þetta nýja met verði slegið í haust.

Umferðin jókst yfir öll mælisnið og mest um snið á Reykjanesbraut eða um 6,5% en minnst um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 2,7%.

Vöktun náttúruverndarsvæða

Uppsöfnuð umferð frá áramótum á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist um 5,2% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Mest var ekið á föstudögum í nýliðnum mánuði og minnst á sunnudögum.

Umferð jókst á öllum vikudögum, mest á föstudögum, borið saman við sama mánuð á síðasta ári, og minnst á laugardögum. Meðalaukning virka daga var 6,2% og 3,9% um helgar.