Æfing Sex orrustuþotur af gerðinni Eurofighter Typhoon koma á morgun.
Æfing Sex orrustuþotur af gerðinni Eurofighter Typhoon koma á morgun. — Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands
Sex orrustuþotur þýska flughersins eru væntanlegar til Íslands á morgun og mættu 30 liðsmenn flugsveitarinnar til landsins í gær. Tilefni komunnar er að stunda æfingar og kynna sér betur aðstæður hér á landi

Sex orrustuþotur þýska flughersins eru væntanlegar til Íslands á morgun og mættu 30 liðsmenn flugsveitarinnar til landsins í gær. Tilefni komunnar er að stunda æfingar og kynna sér betur aðstæður hér á landi.

Áætlað er að orrustuþoturnar, sem eru af gerðinni Eurofighter Typhoon, verði á landinu til 10. ágúst. Í facebook-færslu Landhelgisgæslu Íslands segir að sveitin hafi aðsetur á öryggissvæðinu í Reykjanesbæ og muni æfa með stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli.

„Æfing þýska flughersins er mikilvægur liður í því að efla stöðuvitund og þekkingu á aðstæðum á Íslandi og treystir tvíhliða varnarsamvinnu ríkjanna,“ segir m.a. í færslunni. Flugsveitin er ekki mætt til að sinna loftrýmisgæslu og er verkefnið ekki á vegum Atlantshafsbandalagsins. Þýskar orrustuþotur voru hér síðast árið 2012, þá til að sinna loftrýmisgæslu. Landhelgisgæslan annast framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia.