— Unsplash/Ian Kelsall
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Barselóna er heilsársáfangastaður hjá Icelandair. Þangað er flogið í afar hentugu morgunflugi þrisvar sinnum í viku; þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga. Barselóna hittir þig samstundis í hjartastað og það er auðvelt að sjá hvers vegna

Barselóna er heilsársáfangastaður hjá Icelandair. Þangað er flogið í afar hentugu morgunflugi þrisvar sinnum í viku; þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga.

Barselóna hittir þig samstundis í hjartastað og það er auðvelt að sjá hvers vegna. Heiðblár himinn, borgarstrendur, ljúffeng paella, barir sem opnir eru langt fram eftir, sérkennileg list og arkitektúr sem fær þig til að brosa – það er ekki hægt að biðja um meira. Er Barselóna hinn fullkomni áfangastaður fyrir borgarferð? Það gæti bara vel verið. Kannski. Mjög líklega. Barselónaborg hefur alla vega upp á margt að bjóða fyrir alla aldurshópa.

Láttu eftir þér að kíkja til Barselóna og smakka tapas-réttina og skoða byggingarlist Gaudís. Sjáðu hvernig listin, arkitektúrinn, náttúran og menningin tvinnast fallega saman.

Bragðgott tapas og gotterí af markaðnum

Það er ekki hægt að neita því, Barselóna er einn af bestu áfangastöðum í heimi þegar kemur að mat. Það gæti verið erfitt fyrir þig að standast ákall tapas-smáréttanna, ferska sjávarfangsins, jamón og sangríunnar. Auk þess er listinn yfir veitingastaði með Michelin-stjörnu í Barselóna ansi langur.

Þú getur byrjað hér: Helsti matvörumarkaður Barselóna er Mercat de la Boqueria en hann er staðsettur á Römblunni eða Las Ramblas. Hann samanstendur af bragðgóðri litadýrð sem heillar jafnt augu og bragðlauka. Hér eru einnig tapasbarir þar sem hægt er að stoppa við og hlaða batteríin.

Það er hægt að fá eitthvað gott að borða um alla borg. Við vatnsbakkann er að sjálfsögðu hægt að fá sjávarfang og paella, við L’Eixample eru fínni veitingastaðir og yfir Gràcia liggur ungæðislegur andi þar sem góður matur og barir prýða hvert torg.

Meistaraverk módernistanna

Sérkennilegt listfengi Antonís Gaudís hefur sett svo einstakt mark á Barselóna að borgin er nánast samnefnari fyrir list og arkitektúr. Eftir hann liggur fjöldi bygginga, allt frá hinu ævintýralega Casa Batlló til skemmtilega og sérviskulega Parc Güell, sem samanstendur af ringulreið bogalína og litríkra flísa. Hans helsta arfleifð er þó La Sagrada Família, sem er ótrúleg en ófullgerð dómkirkja. Staldraðu við og njóttu augnabliksins.

Gaudí var ekki eini meistarinn sem tengist Barselóna sterkum böndum. Hvað finnst þér um listamennina Pablo Picasso, Joan Miró og Salvador Dalí? Það er þó fleira spennandi í Barselóna en verk eftir listamenn súrrealismans; saga borgarinnar er einnig stórmerkileg og gotneska hverfið Barri Gòtic er stútfullt af fornum gersemum. Fyrir fótboltaáhugamenn er fátt sem toppar heimsókn á Camp Nou, heimavöll hins vinsæla Barcelona Football Club.

Tískudrósir og góð kaup

Spænsk tískumerki – eins og Zara, Mango og Massimo Dutti – eru vel þekkt um allan heim. Við lítil stræti Barselóna leynist þó ýmislegt sem er vel peninganna og töskuplássins virði. Fólk í verslunarleiðangri mun gleðjast þegar það uppgötvar tískuverslanir nýrra hönnuða, frábærar verslunarmiðstöðvar við vatnsbakkann og götumarkaði sem selja sælkeravörur.

Það er gaman að kíkja á úrvalsvörur á afslætti í götunum sem eru suðvestur af hverfinu Passeig de Gracia. Kannaðu vinnustofurnar og litlu verslanirnar í El Born eða ráfaðu um þröngar götur Barri Gòtic til að grafa upp dýrgripi. Ef þú vilt frekar rölta um innandyra þá er Las Arenas einstök verslunarmiðstöð sem var eitt sinn nautaatshringur! Ekki missa af göngusvæðinu á þakinu þar sem hægt er að taka myndir af fallegu borgarlandslagi Barselóna.

Aðventan ævintýri líkust

Barselóna iðar af lífi allan ársins hring. Það skiptir engu máli á hvaða tíma árs borgin er sótt heim, það er alltaf eitthvað um að vera. Aðventan er sérstaklega skemmtilegur tími til að heimsækja borgina og má með sanni segja að hún umturnist í jólaland. Jólamarkaðir spretta upp við helstu kennileiti borgarinnar og lýsa hana upp með alls kyns jólaljósum og skreytingum. Þú ættir að íhuga það alvarlega að fara í aðventuferð til Barselóna í það minnsta einu sinni á ævinni – sú ferð mun mögulega hafa áhrif á jólahefðir framtíðarinnar.

Skannaðu kóðann og bókaðu borgar- og sólarstrandarferð til Barcelona með Icelandair.

Barcelona – Spánn

Fólksfjöldi: 1,609 miljón (2016)

Svæði: 101,9 km²

Samgöngur: Um Barcelona liggur neðanjarðarlestarkerfi, þar sem loftkældir vagnarnir fara með þig á alla helstu ferðamannastaði borgarinnar. Lestin er sérstaklega hentug á sumrin þegar það er orðið of heitt fyrir gönguferðir um borgina.

Gjaldmiðill: Evra

Spennandi hverfi: Gràcia - Eixample - El Born - Barri Gòtic - El Raval