Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson verður frá keppni næstu tvo mánuðina vegna meiðsla í nára. Arnór meiddist á æfingu með enska liðinu Blackburn, skömmu eftir að hann gekk í raðir þess að láni frá CSKA Moskvu
Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson verður frá keppni næstu tvo mánuðina vegna meiðsla í nára. Arnór meiddist á æfingu með enska liðinu Blackburn, skömmu eftir að hann gekk í raðir þess að láni frá CSKA Moskvu. Arnór mun því væntanlega missa af leikjum Íslands við Lúxemborg á útivelli og Bosníu á heimavelli í undankeppni EM í september. Arnór var ekki með íslenska liðinu gegn Portúgal og Slóvakíu í undankeppninni vegna svipaðra meiðsla.