Kvöldstund með Heiðari snyrti nefnist nýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu í janúar á næsta ári í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Börkur Jónsson hannar leikmyndina og Helga I

Kvöldstund með Heiðari snyrti nefnist nýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu í janúar á næsta ári í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Börkur Jónsson hannar leikmyndina og Helga I. Stefánsdóttir búningana. Leikarar eru Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Hilmir Snær Guðnason, sem leikur titilhlutverkð. Frá leikhúsinu fást þær upplýsingar að hér sé á ferðinni magnað, beitt og meinfyndið verk úr smiðju Tyrfings.