Vínbúðin Fólk er hvatt til að versla snemma til að losna við biðraðir.
Vínbúðin Fólk er hvatt til að versla snemma til að losna við biðraðir. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verslunarmannahelgin er um aðra helgi og sjálfur frídagur verslunarmanna er 7. ágúst. ÁTVR hefur samkvæmt venju birt tilkynningu á heimasíðu sinni þar sem fólk er minnt á að vikan fyrir verslunarmannahelgi er að jafnaði ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum

Verslunarmannahelgin er um aðra helgi og sjálfur frídagur verslunarmanna er 7. ágúst.

ÁTVR hefur samkvæmt venju birt tilkynningu á heimasíðu sinni þar sem fólk er minnt á að vikan fyrir verslunarmannahelgi er að jafnaði ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Yfirleitt er mest að gera á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgi, en flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðirnar á milli kl. 16 og 18. Í einstaka tilfellum hefur þurft að grípa til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum.

Árið 2021 seldust um 814 þúsund lítrar af áfengi í vikunni fyrir verslunarmannahelgina og rúmlega 142 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar. Á föstudeginum seldust 261 þúsund lítrar og viðskiptavinir voru tæplega 41 þúsund.

„Allt kapp er lagt á að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig, en fyrir þá sem vilja forðast raðir er gott að huga að því að vera tímanlega. Er fólki ráðlagt að kíkja við fyrri part vikunnar og fyrri part dags,“ segir á heimasíðu ÁTVR.

Fyrir þá sem vilja nýta sér vefbúð ÁTVR og fá vörurnar sínar sendar í næstu Vínbúð, sé um að gera að panta tímanlega, þar sem sendingar geta tekið allt að viku að berast.

Opið verður um verslunarmannahelgi á föstudag og laugardag en lokað sunnudag og mánudag. sisi@mbl.is