KR-ingur Pálmi Rafn Pálmason er orðinn þjálfari kvennaliðs KR.
KR-ingur Pálmi Rafn Pálmason er orðinn þjálfari kvennaliðs KR. — Ljósmynd/KR
Knattspyrnudeild KR hefur ráðið Pálma Rafn Pálmason sem nýjan þjálfara kvennaliðs félagsins. Hann tekur við af Perry Mclachlan, sem var rekinn í byrjun mánaðar. Síðan þá hafa Jamie Brassington og Vignir Snær Stefánsson stýrt liðinu og verða þeir Pálma til aðstoðar

Knattspyrnudeild KR hefur ráðið Pálma Rafn Pálmason sem nýjan þjálfara kvennaliðs félagsins. Hann tekur við af Perry Mclachlan, sem var rekinn í byrjun mánaðar. Síðan þá hafa Jamie Brassington og Vignir Snær Stefánsson stýrt liðinu og verða þeir Pálma til aðstoðar. Pálmi lék með KR frá 2015 til 2022 og var fyrirliði. Þá hefur hann starfað sem íþróttastjóri hjá félaginu og stýrt 4. flokki karla.