Sigurður Ragnar Eyjólfsson hættir störfum sem þjálfari karlaliðs Keflavíkur í knattspyrnu þegar þessu keppnistímabili lýkur í október. Knattspyrnudeild félagsins skýrði frá þessu í gær. Þetta er fjórða tímabil Sigurðar með liðið en Eysteinn Hauksson var við hans hlið tvö fyrstu árin
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hættir störfum sem þjálfari karlaliðs Keflavíkur í knattspyrnu þegar þessu keppnistímabili lýkur í október. Knattspyrnudeild félagsins skýrði frá þessu í gær. Þetta er fjórða tímabil Sigurðar með liðið en Eysteinn Hauksson var við hans hlið tvö fyrstu árin. Í fyrra náði liðið 7. sæti með frábærum endaspretti en í ár hefur ekkert gengið og eftir sigur í fyrstu umferð er Keflavík án sigurs í síðustu sextán leikjum.