Hlaupagikkir Þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu flykktust til að sækja rásnúmer sín í gær en þátttaka í hlaupinu er með ágætum í ár, um 11.000 manns.
Hlaupagikkir Þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu flykktust til að sækja rásnúmer sín í gær en þátttaka í hlaupinu er með ágætum í ár, um 11.000 manns. — Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Starfsfólk Reykjavíkurmaraþonsins stóð í ströngu við að útdeila rásnúmerum í gær enda þátttaka góð í ár, um 11.000 hlauparar eru skráðir og uppselt í hálfmaraþon. 129 milljónir króna höfðu safnast í áheit þegar Morgunblaðið ræddi við Hrefnu Hlín Sveinbjörnsdóttur viðburðarstjóra í gærkvöldi

Starfsfólk Reykjavíkurmaraþonsins stóð í ströngu við að útdeila rásnúmerum í gær enda þátttaka góð í ár, um 11.000 hlauparar eru skráðir og uppselt í hálfmaraþon. 129 milljónir króna höfðu safnast í áheit þegar Morgunblaðið ræddi við Hrefnu Hlín Sveinbjörnsdóttur viðburðarstjóra í gærkvöldi.

Valdimar Sverrisson lætur sem fyrr engan bilbug á sér finna og hleypur nú sitt sjötta tíu kílómetra hlaup. Valdimar er blindur og hleypur eins og áður í fylgd Jósteins Einarssonar en Valdimar sagði í viðtali við mbl.is árið 2019 að hans helsta takmark væri að koma Jósteini í mark. Valdimar sótti sitt númer í gömlum Elvis-búningi, frá Las Vegas-tímabili kóngsins, en verið er að leggja lokahönd á hlaupabúninginn sjálfan, sagði Valdimar við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann hleypur til styrktar Grensásdeild Landspítalans.