Michael Parkinson
Michael Parkinson
Breski sjónvarpsþáttastjórnandinn Michael Parkinson er látinn, 88 ára. Í frétt BBC segir að sjónvarpsferill hans hafi spannað sjö áratugi og að hann hafi tekið viðtöl við margar af helstu stjörnum heimsins í spjallþætti sínum

Breski sjónvarpsþáttastjórnandinn Michael Parkinson er látinn, 88 ára. Í frétt BBC segir að sjónvarpsferill hans hafi spannað sjö áratugi og að hann hafi tekið viðtöl við margar af helstu stjörnum heimsins í spjallþætti sínum.

Aðalframkvæmdastjóri BBC, Tim Davie, lýsti þar Parkinson sem frábærum þáttastjórnanda sem væri engum líkur. Davie sagði hann ekki aðeins hafa verið snjallan spyril heldur einnig dásamlegan hlustanda.