Stuðningur Ásmundur Einar, Berglind og Willum Þór skrifa undir.
Stuðningur Ásmundur Einar, Berglind og Willum Þór skrifa undir. — Ljósmynd/Stjórnarráðið
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hafa undirritað samning við Foreldrahús um auknar forvarnir. Stuðningurinn er ætlaður til að auka aðgengi foreldra og barna að þjónustu, ráðgjöf og…

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hafa undirritað samning við Foreldrahús um auknar forvarnir.

Stuðningurinn er ætlaður til að auka aðgengi foreldra og barna að þjónustu, ráðgjöf og stuðningi Foreldrahúss í tengslum við fíknivanda barna með sérstaka áherslu á viðbragð við vaxandi notkun ópíóíða. Samhliða á í forvarnarskyni að auka fræðslu fyrir foreldra barna á unglingastigi grunnskóla um áhættuhegðun barna.

Fyrir hönd Foreldrahúss undirritaði Berglind Gunnarsdóttir samninginn. Í tilkynningu segir að hann sé liður í aðgerðum heilbrigðisráðherra til að sporna við skaða af völdum ópíóíða og annarra vímuefna og mennta- og barnamálaráðherra um snemmtækan stuðning í þágu farsældar barna.

Aðgerðirnar snúa m.a. að því að efla úrræði á vegum frjálsra félagasamtaka sem sýnt hafa fram á árangur á sviði forvarna og snemmtækra inngripa fyrir ungmenni sem sýna forstigseinkenni vímuefnavanda og aðstandendur þeirra.