Noregur Bakvörðurinn Logi Tómasson er á leið til Strömsgodset.
Noregur Bakvörðurinn Logi Tómasson er á leið til Strömsgodset. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Knattspyrnumaðurinn Logi Tómasson er á leið til norska úrvalsdeildarfélagsins Strömsgodset frá Víkingi úr Reykjavík. Þetta staðfesti umboðsmaður hans í samtali við fótbolta.net í gær. Logi mun ferðast til Noregs síðar í mánuðinum og því bendir allt…

Knattspyrnumaðurinn Logi Tómasson er á leið til norska úrvalsdeildarfélagsins Strömsgodset frá Víkingi úr Reykjavík. Þetta staðfesti umboðsmaður hans í samtali við fótbolta.net í gær. Logi mun ferðast til Noregs síðar í mánuðinum og því bendir allt til þess að hann muni leika sinn síðasta leik fyrir Víkinga á sunnudaginn þegar liðið mætir Val á Hlíðarenda í 20. umferð Bestu deildarinnar. Strömsgodset situr í 10. sæti norsku deildarinnar.