Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, 2. varaforseti Alþýðusambands Íslands, ASÍ, segir í samtali við Morgunblaðið að sú ákvörðun ASÍ, að hætta viðskiptum við Íslandsbanka, hefði verið tekin óháð því hvernig bankinn hygðist axla ábyrgð á brotum sínum við sölumeðferð á hlut ríkisins í bankanum

Hermann Nökkvi Gunnarsson

hng@mbl.is

Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, 2. varaforseti Alþýðusambands Íslands, ASÍ, segir í samtali við Morgunblaðið að sú ákvörðun ASÍ, að hætta viðskiptum við Íslandsbanka, hefði verið tekin óháð því hvernig bankinn hygðist axla ábyrgð á brotum sínum við sölumeðferð á hlut ríkisins í bankanum. Nú hafa Neytendasamtökin, ASÍ og VR öll hætt viðskiptum við Íslandsbanka.

Ákvörðun ASÍ var tekin á miðstjórnarfundi sl. fimmtudag. Að sögn Hjördísar var ákvörðunin ekki tekin í samráði við VR, sem tilkynnti á föstudagsmorgun að félagið hefði slitið viðskiptum sínum við Íslandsbanka.

„Þessi ákvörðun var algjörlega óháð ákvörðun VR. Það kom reyndar fram að þeir ætluðu að fjalla um málið um kvöldið, en ákvörðun þeirra lá ekki fyrir á miðstjórnarfundinum.“

Úrbætur ekki haft áhrif

Hjördís segir að hverjar sem aðgerðir Íslandsbanka til að bæta fyrir brot sín kynnu að verða að þá hefðu þær ekki haft áhrif á ákvörðun ASÍ. „Er nokkuð hægt að bæta fyrir svona brot? Ég er mjög efins um það. Þarna erum við að tala um eigur almennings í landinu sem er verið að selja til valinna aðila á undirverði.“

Í hennar huga séu brot bankans varanlegur blettur á orðspori Íslandsbanka og henni sé til efs að fyrir þau sé hægt að bæta.

Bankastjóri Íslandsbanka, Jón Guðni Ómarsson, segir miður að ASÍ, VR og Neytendasamtökin hafi ákveðið að hætta í viðskiptum við bankann. Það sé skýr vilji hjá bankanum að axla ábyrgð og segir mikilvægt að hafa í huga að miklar breytingar hafi verið gerðar á stjórn bankans nýverið. Hann segir úrbótavinnu vera vel á veg komna og að hún hafi verið unnin með erlendum ráðgjöfum.

Afleiðingar skýrslunnar

ASÍ, VR og NS hætt viðskiptum við Íslandsbanka

2. varaforseti ASÍ segir Íslandsbanka ekki hafa axlað ábyrgð fyllilega

Hefðu hætt viðskiptum
óháð viðbrögðum Íslandsbanka

Bankastjóri Íslandsbanka ekki orðið var við mikið brotthvarf viðskiptavina