— Morgunblaðið/Eggert
Mikill mannfjöldi safnaðist saman í Elliðaárdal í gær þar sem fram fór hið árlega Sumarkjóla-og freyðivínshlaup. Hlaupið hófst við Elliðaárstöð þar sem hlaupurum gafst færi á að bragða á ýmiss konar víni frá víninnflytjendum sem kynntu vörur sínar

Mikill mannfjöldi safnaðist saman í Elliðaárdal í gær þar sem fram fór hið árlega Sumarkjóla-og freyðivínshlaup. Hlaupið hófst við Elliðaárstöð þar sem hlaupurum gafst færi á að bragða á ýmiss konar víni frá víninnflytjendum sem kynntu vörur sínar. Hlaupið sjálft var síðan ræst kl. 18 og skokkuðu freyðivínshlaupararnir fimm kílómetra í veðurblíðunni, margir íklæddir kjólum og nokkrir með litríka blómakransa. Þá var þátttakendum gert að mæta með freyðivínsglas í hönd og var skálað að hlaupi loknu.