Daníel Þorvaldsson, Júnía Lín Jónsdóttir og Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir eru á „Topp 20 undir 30“ lista útflutningsskrifstofa Norðurlandanna, NOMEX, sem kunngjörður var í gær.
Fram kemur í tilkynningu að þau munu veita viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn á tónlistarhátíðinni By:Larm sem fram fer í Osló í næsta mánuði.
Bjarna Daníel þekkja flestir fyrir aðkomu hans að listasamfélaginu Póst Dreifingu, Júnía Lín starfar hjá Universal í London ásamt því að sjá um kynningarmál fyrir tvíburasystur sína Laufeyju og Sólveig Matthildur er meðlimur hljómsveitarinnar Kælunnar miklu.