— Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri | Þjóðhátíðardagur Úkraínumanna var í gær og stóð Amtsbókasafnið á Akureyri af því tilefni fyrir viðburði þar sem Úkraínumenn búsettir á Akureyri kynntu úkraínskar bókmenntir. Þá afhentu þeir 40 nýjar bækur frá Úkraínu fyrir bæði börn og fullorðna, og eru þær nú til útláns í safninu

Akureyri | Þjóðhátíðardagur Úkraínumanna var í gær og stóð Amtsbókasafnið á Akureyri af því tilefni fyrir viðburði þar sem Úkraínumenn búsettir á Akureyri kynntu úkraínskar bókmenntir. Þá afhentu þeir 40 nýjar bækur frá Úkraínu fyrir bæði börn og fullorðna, og eru þær nú til útláns í safninu.

Hér má sjá þau Lesyu Moskalenko og Andrii Gladii fjalla um bækurnar, en Natalia Kravtchouk tók einnig þátt í afhendingunni. Helmingur bókanna var fyrir börn, og er nú m.a. hægt að fá Harry Potter-bækurnar á úkraínsku og bókina Abetka, sem hefur um langan aldur verið nýtt til að kenna úkraínskum börnum stafrófið.