Hinir dáðu Jonas-bræður eru um þessar mundir á tónleikaferð saman, þeirri fyrstu í mörg ár. Hjartnæm stund átti sér stað í Toronto á tónleikum þeirra á dögunum þegar þeir voru í þann mund að fara að flytja lagið Little bird
Hinir dáðu Jonas-bræður eru um þessar mundir á tónleikaferð saman, þeirri fyrstu í mörg ár. Hjartnæm stund átti sér stað í Toronto á tónleikum þeirra á dögunum þegar þeir voru í þann mund að fara að flytja lagið Little bird. Kona ein hélt þá á skilti í áhorfendaskaranum sem á stóð: „Viljið þið tileinka englinum mínum á himninum Little bird.“ Þegar þeir sáu skiltið spurði Joe hvað litli engillinn hennar héti og var svarið Valentína. Bræðurnir tileinkuðu því Valentínu litlu lagið. Sjá allt um Stjörnufréttir Evu Ruzu á K100.is.