Kolbeinn Jón Ketilsson tenór og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja íslensk, norsk, þýsk og ítölsk lög á síðustu stofutónleikum sumarsins á Gljúfrasteini á morgun kl. 16. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum eru Kolbeinn Jón og…
Kolbeinn Jón Ketilsson tenór og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja íslensk, norsk, þýsk og ítölsk lög á síðustu stofutónleikum sumarsins á Gljúfrasteini á morgun kl. 16.
Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum eru Kolbeinn Jón og Matthildur bæði virkir flytjendur hér á landi sem og erlendis og hafa komið fram í mörgum af helstu tónlistarhúsum Evrópu. Aðgangseyrir er 3.500 krónur og fer miðasala fram í móttöku safnsins fyrir tónleika.