Annar hluti spunaþríleiks Davíðs Þórs Jónssonar, píanóleikara, tónskálds og staðarlistamanns Salarins 2023, sem mun spanna hálft ár, verður í Salnum á morgun og hefst kl. 13.29. „Allir tónleikarnir fara fram á sunnudegi þegar sólin er hæst á lofti…
Annar hluti spunaþríleiks Davíðs Þórs Jónssonar, píanóleikara, tónskálds og staðarlistamanns Salarins 2023, sem mun spanna hálft ár, verður í Salnum á morgun og hefst kl. 13.29. „Allir tónleikarnir fara fram á sunnudegi þegar sólin er hæst á lofti og þegar mánuðir eru við það að renna saman,“ segir í kynningu og tekið fram að tónleikarnir séu „stórfengleg óvissuferð“. Tónleikaveislunni lýkur 29. október kl. 13.11. Miðar fást á tix.is.