Endur Eitt verkanna á sýningunni.
Endur Eitt verkanna á sýningunni.
Sýning á verkum eftir Ragnar Kjartansson eldri verður opnuð í Listhúsi Ófeigs í dag, laugardag, milli kl. 15 og 17. „Ragnar Kjartansson var einn af þekktustu myndhöggvurum og keramikerum sinnar kynslóðar á Íslandi

Sýning á verkum eftir Ragnar Kjartansson eldri verður opnuð í Listhúsi Ófeigs í dag, laugardag, milli kl. 15 og 17. „Ragnar Kjartansson var einn af þekktustu myndhöggvurum og keramikerum sinnar kynslóðar á Íslandi. Ennfremur hafði hann mikil áhrif í myndlistarsamfélaginu um miðja 20. öld sem myndlistarkennari og lærifaðir. Ragnar naut þess að dvelja við ströndina og mála með vatnslitum. Á þessari sýningu, sem haldin er í tilefni þess að nú eru 100 ár liðin frá fæðingu hans, má sjá nokkrar þeirra mynda sem hann vann síðustu æviárin og hafði stefnt á að sýna en vannst ekki tími til,“ segir í viðburðarkynningu. Sýningin stendur til 20. september.