Meiðsli Cecilía Rán verður frá keppni næstu mánuðina.
Meiðsli Cecilía Rán verður frá keppni næstu mánuðina. — Morgunblaðið/Hákon
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, meiddist illa á hné á æfingu með Þýskalandsmeisturum Bayern München í vikunni. Í tilkynningu á heimasíðu þýska stórveldisins er greint frá því að hnéskelin á Cecilíu Rán hafi farið úr lið, …

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, meiddist illa á hné á æfingu með Þýskalandsmeisturum Bayern München í vikunni. Í tilkynningu á heimasíðu þýska stórveldisins er greint frá því að hnéskelin á Cecilíu Rán hafi farið úr lið, sem þýðir að hún verður frá um nokkurra mánaða skeið. Á hún að baki ellefu A-landsleiki fyrir Íslands hönd, nokkra leiki í efstu deildum Þýskalands og Svíþjóðar og 30 leiki fyrir Fylki í efstu deild.