Heiður Berglind Þorsteinsdóttir, vélstjóri á varðskipinu Þór, segir að sér líði vel á sjó og er ekki á leið í land.
Heiður Berglind Þorsteinsdóttir, vélstjóri á varðskipinu Þór, segir að sér líði vel á sjó og er ekki á leið í land. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ég hafði eiginlega ekkert heyrt um þetta áður eða pælt í þessu, aldrei farið á sjó eða neitt svoleiðis. Ég hef hins vegar alltaf haft áhuga á vélbúnaði og hvernig hann virkar, mikið pælt í því þegar ég var í sveit sem krakki en ég er úr…

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Ég hafði eiginlega ekkert heyrt um þetta áður eða pælt í þessu, aldrei farið á sjó eða neitt svoleiðis. Ég hef hins vegar alltaf haft áhuga á vélbúnaði og hvernig hann virkar, mikið pælt í því þegar ég var í sveit sem krakki en ég er úr bænum,“ segir Heiður Berglind spurð hvað hafi orðið til þess að hún ákvað að læra vélstjórn.

„Ég hafði hugsað mér að fara í vélaverkfræði, margir með svona áhuga vilja fara í verkfræði. Ég ákvað að taka A-stigið í vélstjórn með stúdentsprófinu því það gæti verið góður grunnur að vélaverkfræðinni. En svo þegar ég fór að vinna við þetta og fór á sjó áttaði ég mig á því hvað ég hafði mikinn áhuga á verklegu hliðinni. Mér fannst líka dásamlegt að vera á sjó – það er æðisleg tilfinning – og hafði þá allt í einu meiri áhuga á því en að fara í vélaverkfræðina.“

Mætti óvart í fyrsta túr

Samhliða náminu réð Heiður Berglind sig sem háseta á línuskip og vann einnig í smiðjum. Á sjó byrjaði hún sem háseti og var einnig stundum vélavörður. „Var að leysa af einn og einn túr á meðan ég var í náminu og þá áttaði ég mig á því hvað það er gaman að vera á sjó,“ segir hún.

En hvernig kom það til að þú fórst á sjó?

„Ég hringdi í alla skipstjóra á öllum mögulegum skipum sem ég gat fengið símanúmer hjá. Það var svolítið erfitt að fá fyrsta plássið. Það hringdi síðan í mig skipstjóri sem hafði fengið númerið mitt hjá öðrum skipstjóra sem ég hafði talað við og hann hafði misskilið og hélt að ég hefði farið áður í túr á hinu skipinu. Þegar ég mæti um borð í Fjölni GK þá fær hann að vita að ég er bara að mæta í fyrsta túr. Það gekk samt voðalega vel og ég fann ekkert fyrir sjóveiki.

Túrinn var mjög fínn, skipstjórinn frábær og áhöfnin alveg æðisleg og tók mér rosalega vel. Maður þurfti að sanna sig svolítið fyrst, maður fann það alveg, en um leið og maður var kominn inn í vinnuna var þetta ótrúlega skemmtilegt.“

Með vélstjórann í blóðinu

Berglind Heiður lætur ekki deigan síga þótt stífar kröfur séu gerðar til skipverja á fiskiskipum. „Ég fór í einn túr að leysa af sem háseti á línuskipi sem ég hafði ekki farið á áður. Ég frétti að yfirmaðurinn minn þar hefði ekki viljað fá konu á sína vakt. Hann ákvað að senda mig neðst í skipið í að stafla beitunni á lyftu. Venjulega fara tveir í þetta, en hann sagði að ég ætti ekki að koma upp fyrr en ég væri búin að þessu. Þegar ég var búin fannst honum ég greinilega allt í lagi, þá var búið að prófa mig. Eftir þetta var þetta bara æðislegur túr,“ segir hún og hlær.

Oft gengur sjósókn í ættir og átti Heiður Berglind ekki von á að það ætti einnig við um sig þegar hún valdi að hefja nám í vélstjórn. „Ég vissi að afi minn hafði unnið eitthvað á gámaskipum áður en pabbi fæddist. Annars vissi ég ekki af neinum í fjölskyldunni sem hefði farið þessa leið en það kippti sér enginn af fjölskyldu eða vinum upp við það að ég ákvað að fara í þetta nám. Svo komst ég að því þegar ég var að útskrifast sem vélstjóri að langafi minn hafði verið vélstjóri.“

Fékk loks eigin klefa

Eftir útskrift hóf hún störf á varðskipinu Tý, sem nú hefur verið selt úr landi, og fékk síðar stöðu á Þór. „Þegar ég byrja á Tý upplifi ég í fyrsta skipti að vera ein í klefa og með klósett inni í klefanum, það var mikill lúxus. Áður vorum við alltaf tvö í klefa,“ rifjar hún upp.

„Þetta er alveg æðislegt, svo fjölbreytt og skemmtileg vinna. Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt, sem mér finnst alveg æðislegt,“ segir hún og kveðst þrífast vel um borð í Þór og er vinnuaðstaðan þar sérstaklega góð.

En um hvað snýst starf vélstjóra?

„Að vera vélstjóri á sjó snýst um að læra að redda sér. Ef eitthvað bilar þarf maður að finna leiðir til að laga það þótt maður sé ekki endilega með allt sem maður þarf. Ef það vantar eitthvað þarf maður kannski að smíða það sem mann vantar úr einhverju sem er kannski ekki neitt. Það þarf að finna út úr bilunum, þetta er hálfgerð þraut og þarf að vera mikil hugsun á bak við það sem maður gerir.“

En er ekki hætt við að maður slysist til að gera eitthvað sem virkar ekki?

„Það kemur alveg fyrir,“ svarar Heiður Berglind og hlær. „Þetta getur alveg reynt á þolinmæðina en það vegur upp á móti hvað það er gaman þegar gengur upp að laga eitthvað.“

Ekki á leið í land

Heiður Berglind segir ekki erfitt að vera þrjár vikur í senn frá landi. „Þetta er bara svo rosalega skemmtilegt umhverfi, sérstaklega þegar áhöfnin vinnur vel saman. Það er margt sem við gerum saman áhöfnin og þetta verður hálfgerð fjölskylda. Svo er maður einhvern veginn með ákveðið hugarfar um að maður sé kominn í annað umhverfi og svo er líka góð líkamsrækt um borð sem hjálpar helling.“

Ákveðið álag fylgir því að vera vélstjóri á fiskiskipi og varðskipi en eðlilega er einhver munur á verkefnunum, að sögn hennar. „Hjá Gæslunni koma rólegir tímar en þegar er mikið að gera eins og í kringum útköll er mikið álag. Á fiskiskipunum er unnið allan tímann, fer kannski smá eftir hvernig fiskast, en vaktirnar eru lengri. Sem vélstjóri hjá Gæslunni er maður eiginlega bara í því en á fiskiskipum eru vélstjórarnir líka í fiskinum. Það er alveg gaman líka og ég hef saknað þess og hef pælt í að taka einn og einn túr aftur.“

Spurð um framtíðina segir hún allt mjög opið en nú líði sér vel hjá Landhelgisgæslunni. Þú ert þá ekkert á leið í land í bráð?

„Nei, það er ekki planið alla vega. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Mér finnst mjög gaman hvað þetta er fjölbreytt starf, maður veit aldrei hvað maður er að fara út í þegar maður mætir á vakt.“

Hún segist ekki útiloka frekara nám og að allt sé opið, en hún kveðst einnig hafa löngun til að prófa fleiri ný verkefni innan Landhelgisgæslunnar.

Höf.: Gunnlaugur Snær Ólafsson